Sæll er sá sem annars böl bætir
Posted by Auður on April 15th, 2009 filed in Blaaa, Ástralía2 Comments »
Jamm, var að fá í hendurnar pakka frá mömmu með íslensku nammi, þar á meðal sex litlum nóa páskaeggjum. Takk!
Erum í fríi frá skóla í augnablikinu, búið að vera í nógu að snúast svo ekki mikið frí, en gott að get verið sveigjanlegri með tíma og ekki bætast við ný verkefni í bunkann þegar ekki er skóli.
Keyptum um daginn fínt rafmagnspíanó, viku seinna sagði vinkona mín frá vinkonu sinni sem vantaði að koma píanói fyrir einhversstaðar í geymslu. Við fórum og skoðuðum píanóið og það er nú komið heim til okkar í “geymslu” í ár að minnsta kosti. Algjör lúxus, eitt píanó á mann
Skólinn er æði, brjálað að gera; er að læra að útsetja; spila tónlist frá Bali (spila á “Gamelan” og syngja og dansa að sið Bali búa); er í samspili þar sem kennarinn spilar á trommur, en hann er mjög virtur jazz trommuleikari hér, rúmlega sextugur og hefur verið að spila í áratugi; er svo í einum tíma sem mér finnst ekkert svo skemmtilegur, raftónlist, langdregnir tímar að hlusta á kennarann tala um e-ð fólk sem voru frumkvöðlar með hitt og þetta í raftónlist og svo verkefni tengd því sem hann talar um, eitthvað sem ég sé ekki fyrir mér að nota mikið, en allt í læ. Gerði um daginn verkefni þar sem ég tók upp röddina í mér, importaði hana svo í forrit og bjó til hljóðfæri úr henni, tnegdi semsagt við hljómborð þannig að þegar ég ýti á lyklana þá kemur röddin mín. Doldið gaman að því bara.
Finnst skemmtilegast að útsetja, hef mestan áhuga á því. Í söngtímum er ég mikið að vinna í því að semja og svo auðvitað meira tæknilegu eins og raddbeitingu og að improvisera með mismunandi skala. Og já, svo er ég nýburjuð í tveim valtímum sem eru Composing for instruments og Songwriting, mjög tengdir hlutir en kennararnir nálgast viðfangsefnið á mismunandi hátt og hugsa þetta öðruvísi. Sá sem kennir CFI er að mestu að spila jazz þó hann segi að auðvitað megi nota það sem hann kennir fyrir hvaða tónlist sem er, en hinn, Songwriting kennarinn er meira beisd í popp tónlist og nálgast viðfangefnið frá því sjónarhorni. Æ já, gæti sagt frá svo miklu varðandi skólann, en hætti hér.
Það var smá Íslendingahittingur hérna um daginn, hittumst í almenninsgarði þar sem var grillað og spjallað. Allir nema einn eru hérna í námi. Fréttum af steiktum lauk og prins póló til sölu á Queen Victoria Market. Skundum þangað sem fyrst. Mikið vorum við hissa þegar við vorum nýkomin hingað og ekki til steiktur laukur í stórmörkuðum.
Svo fórum við um daginn til íslenska konsúlsins hérna í Melbourne til að kjósa. Hún hefur búið hérna í einhver 30 ár. Póstlögðum atkvæðin okkar í gær.
Ný bloggfærsla
Posted by Auður on February 11th, 2009 filed in Blaaa, Ástralía2 Comments »
Kominn tími á nýtt blogg!
Ég er bara búin að vera að vinna að mestu leyti. Skellti mér í einn píanótíma þar sem ég fékk hjálp við að plana æfingartímann minn. Fer í ræktina tvisvar í viku. Nýbúin að starta jazzbandi, ætlum að spila gamlann “trad-jazz” í ætt við Billie Holiday og Louis Armstrong.
Þið vitið kannski að það var hitabylgja hérna um daginn. Met var slegið síðan sautjánhundruð og súrkál, man ekki töluna nákvæmlega, 46,5 gráður ca. Þetta var ekki skemmtileg reynsla, strax og ég steig út fyrir leið mér eins og ég væri lasin bara. Aldrei upplifað svona áður, það var allt heitt! Fötin inní skáp voru heit og sjampóið og hárnæringin voru heit, haha! Ég var heppin að vera að vinna slatta meðan þetta gekk yfir en það er sko almennileg loftkæling þar. Hún byrjaði nú samt að leka þessa daga, of mikið álag eða eitthvað. Þetta var svakalegt.
Svo eru nottla eldar sem geisa hérna eins og þið hafið eflaust lesið í fréttum. Hræðilegt. Þeir eru ca 20 km í burtu frá okkur en við erum víst ekki í hættu því byggðin er svo þétt þar sem við búum. Þetta er meira fyrir utan bæinn þar sem eru fleiri tré og gróður.
Erum komin með nýja tölvu, keypti mér mac en við vinnum með þannig tölvur í skólanum og gott að vera með það þá heima líka. Algjör lúxus.
Get ekki beðið eftir að skólinn byrji. Næstu viku eru allskonar orientation fyrir hinar og þessar deildir. Ég talaði við Nick sem er yfir kúrsnum okkar, sagði honum frá bandinu sem ég væri að koma í gang og að það mætti endilega hafa samband við mig ef vantaði einhvern að spila. Hann sagði að við mættum endilega spila á Fimmtudaginn á orientationinu okkar. Svo hringdi annar kennari í mig í dag og spurði hvort ég vildi syngja með sér og Nick (trompet og kontrabassi) á orientationi hjá myndlistardeildinni á Mánudaginn. Ég sagðist meira en til í það. Algjör heiður að fá að spila með atvinnu tónlistarmönnum.
Fórum óvænt á æðislegt gigg fyrir tveim vikum. Hljómsveitin The Hoodangers voru að spila en þeir eru víst vel þekktir út um allan heim, hafa spilað á furðulegustu stöðum og þar á meðal spilað á Íslandi, oftar en einu sinni held ég. Ofangreindur trompetleikari er t.d. í þessu bandi. Ég hafði heyrt talað um þá en vissi ekki meir, en þetta var þvílíkt snilldar band. Þeir spila gamaldags djass, New Orleans style, með banjói og svona. Skemmti mér svooo vel og keypti líka diskinn með þeim. Hluti af snilldinni var orkan innan bandsins, þeir voru svo skemmtilegir, voru svoo að njóta sín bara og grínast fram og tilbaka. Frábært. Fer að sjá þá aftur á Sunnudaginn með strákunum úr bandinu mínu, þessi tónlist er einmitt svipuð því sem við viljum spila.
Stutt blogg ur vinnunni
Posted by Auður on January 24th, 2009 filed in Blaaa, Ástralía2 Comments »
hallo umheimur! That er skrytid ad vera ekki med internet heima, thad tekur upp undir 30 daga ad fa netid tengt a nyja stadnum en ofan a thad tha do tolvan okkar fyrir viku en vonandi verdum vid buin ad kaupa nyja thegar netid verdur loksins tengt.
Vid erum allavegana flutt og lidur svakalega vel tharna. Allir sattir thar a medal Kisa litla. Skrytid ad hafa svona mikid plass, thad er algjor unadur! Erum enn ad taka uppur kossum og svona, skreppandi hingad og thangad ad kaupa hluti sem vantar en thetta fer allt ad smella saman. Skolinn byrjar svo seinnipart Februar. Hlakka til, er litid sem ekkert buin ad gera i tonlist i ollu friinu :s Bara vinna og flytja. Hlakka til ad fa namslan aftur, vinna minna og spila meira
Knus til ykkar allra! :D
Nýja húsið
Posted by Auður on January 12th, 2009 filed in Blaaa, ÁstralíaComment now »
Síðasta miðvikudag keyrðum við með vinkonu okkar fyrir utan nýja húsið okkar til að sýna henni og sjáum þá að það er fólk e-ð að bardúsa þar og húsið opið. Við verðum svaka glöð, leggjum bílnum og gefum okkur á tal við fólkið, einn mannanna var þá maður dóttur gömlu konunnar sem hafði búið þarna (hún dó í September), rosa vinalegur maður, írskur, angaði af áfengi en mjög þægilegur. Við fáum að skoða húsið aðeins betur, sýna Söruh vinkonu og spurja hann spurninga. Hann segist vera að vinna í að tæma húsið og svo verði allt þrifið og gert fínt fyrir afhendinguna á föstudaginn. Spyr hvort við viljum láta þrífa teppið á gólfunum sem við sögðum auðvitað já við og hann sagðist þá myndi gera það. Stuð og fjör. Svo mætum við að skrifa undir samninginn og sækja lyklana hjá agentinum á Föstudagsmorgun, svaka stemning, og svo beint uppí hús. Þá kom í ljós að það voru greinilega skiptar skoðanir um hvað kallast hreint. Við gátum í raun ekki séð að neitt hefði verið þrifið nema teppin í tveimur herbergjunum. Svo við hringjum strax í agentinn til að kvarta undan þessu (samkvæmt leigusamningnum og leigureglum hérna þá eiga leigjendur að fá húsnæðið hreint í hendurnar og skila því svo þannig af sér líka.)
Stuttu seinna hittast Goggi, Lindsay og írski gaurinn í húsinu að ræða þetta, sá írski, Martin, var steinhissa á okkur, hann taldi eldhúsið hafa verið þrifið tvisvar af atvinnufólki og var bara gáttaður. En hann var ekkert fúll neitt heldur var til í að gera allt fyrir okkur, borga fyrir atvinnuhreinsimanneskju og fleira. Svo við hringjum og pöntum eitt stykki atvinnuhreinsimanneskju á mánudaginn, sem var í dag.
Um helgina fórum við í ‘Byko’ og keyptum hitt og þetta til að dytta að húsinu (á kostnað leigusala), kýtti (það er t.d. gat í gólfinu á herbergi 4, maður sér bara undir húsið), efni til að búa til flugnanet (vantaði á tvo glugga, glugga sem ekki er hægt að loka almennilega) og sitthvað fleira. Goggi færði til dæmis uppþvottavélina svo það yrði tilbúið fyrir hreinsimanneskjuna, þá kom í ljós fullt af músaskít og bara allskonar fita og drulla og ógeð. Og í dag kom semsagt hreinsimanneskjan. Við færðum eldavélina líka þar sem kom í ljós samskonar viðbjóður og var undir uppþvottavélinni og tókum háfinn í burtu barasta! (fitan lak af honum og fast í henni hár og dauðar köngulær og ég veit ekki hvað) Inni í háfinum kom í ljós hrúga af einhverju sem ég veit ekki hvað er. Tókum niður gluggatjöldin sem voru mjög rykug með vefum út um allt og pöddulíkum og fórum með í þurrhreinsun.
Hringdum í morgun í agentinn til að segja henni frá því sem við höfðum séð/fundið um helgina. Hún var eitthvað að gera lítið úr þessu og sagði að það væri fullt af fólki sem mundi glatt búa í þessu og benti á að ef við vildum þá gætum við aflýst samningnum! Ég var ekkert smá hissa. Hún ætti að sjá viðbjóðinn! En hún var samt alveg samvinnuþýð og þau segjast munu borga þetta allt. En við áttuðum á í dag að allt varðandi hreinsun og viðgerðir á þessu húsi hefur verið gert munnlegt. Ég ákvað að hringja í consumer affairs hérna og lýsti þessu öllu fyrir þeim og spurði um rétt okkar og hvað best væri að gera. Þeir sögðu að við værum að gera allt rétt og værum ekki með neinar óraunhæfar kröfur en það væri ráðlegt að koma einhverju niður á blað + passa uppá allar kvittanir og fá skýrslur frá þeim sem við kaupum þjónustu hjá ef við skyldum lenda í vandræðum með að fá þau til að borga okkur tilbaka. Gott að vera með allt á hreinu. Svo var það síðasta sem við gerðum í húsinu að taka myndir:
Þrifamaðurinn eyddi ca. fjórum tímum bara í eldhúsinu í dag og hann er ekki búinn með það, kemur aftir á næstu dögum, klárar eldhúsið og svo restina af húsinu. Við spurðum hann að gamni hversu skítugt þetta eldhús væri á skalanum 1-10 miðað við það sem hann hefur kynnst í þessari vinnu. Hann gaf því 7.
Við erum semsagt ekki flutt ennþá, höfum sem betur fer núverandi húsnæði til 24. Lindsay er að verða búinn að flytja allt sitt hafurtask inní eitt herbergja sinna, ætli við flytjum ekki um næstu helgi sjálf, í seinasta lagi, þegar allt verður komið í gott, ásættanlegt stand.
Í lokin nokkrar myndir:
Aðfangadagskvöld
Mmmmmmm! Nóa konfekt

Nývöknuð

Lúll
Lindsay sem við erum að fara að flytja inn með
Ár og flutningar
Posted by Auður on January 4th, 2009 filed in Blaaa, Ástralía4 Comments »
Jólin voru algjört minimal hérna í Ástralíu. Á aðfangadag fór ég á kaffihús um morguninn, keypti svo í matinn fyrir jóladag, spilaði tennis við Gogga og fór svo að vinna til 10. Þegar heim var komið opnuðum við pakka og borðuðum nóa konfekt. Fengum fullt af íslenskri tónlist meðal annars. Takk fyrir okkur! Vann smá á jóladag, svo bara heima, elduðum góðan mat um kvöldið og ðets it. Búin að vera að vinna á hverjum degi síðustu viku, það með talið á gamlárs til kl 8. Goggi fór með Lindsay (vini okkar sem við erum að fara að búa með) að heimsækja vini í strandhúsi utan við bæinn á gamlárs, ég fór heim til vinkonu í mat beint eftir vinnu, svo hjóluðum við í hús sem hún er að passa, gáfum ketti og röltum svo í glænýtt bryggjuhverfi hérna, the docklands, þar sem við komum okkur fyrir á teppi og horfðum á æðislega flotta tíu mínútna flugelda sýningu. Það var æðisleg stemning í bænum, fjölskyldustemning og vinalegt, engin drykkjulæti. Svo beint heim eftir það.
En jólin eru eiginlega að koma hjá mér núna….við erum nefnilega búin að finna hús!! Förum á morgun að borga trygginguna og skrifa undir samning og svona. Stuð og fjör. Það verða algjör jól að fá smá næði í stærra húsnæði!! Vííííí.




Hugmyndin er að við tökum bed 2 og 4 + loungið og Lindsay bed 1, 3 og workshopið. Loungið verður örugglega herbergið hans Gogga plús smá stofufílingur, en fyrst og fremst herbergið hans, svo tek ég annað hvort 2 eða 4 sem mitt prívat læriherbergi og þriðja herbergið verður svo svefnherbergi. Garðurinn er æði, sé Kisu í hyllingum að dandalast þar
Það er loftkæling í þremur herbergjum og til að toppa þetta þá er leigan fáránlega lág, við munum öll enda með að borga aðeins minna í leigu en við erum að borga núna.
Jólablogg
Posted by Auður on December 24th, 2008 filed in Blaaa, Ástralía1 Comment »
Langt síðan síðast. Próf gengu vel, náðum öllu. Hef ekki æft mig í allan Desember, verið að vinna og dandalast þar á milli. Byrjuðum að taka upp lag eftir mig fyrr í mánuðinum, væri gaman að klára það í Janúar. Svo erum við á fullu að skoða hús. Erum búin að finna eitt (eða tvö, fer eftir því hvern þú spyrð) sem okkur líst vel á og sótt um bæði. Ný hús koma inn á hverjum degi líka. Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar!! Átti góðan ammælisdag: tekinn upp gítar á lagið mitt um morguninn, slakað á heima um eftirmiðdaginn, út að borða um kvöldið og svo kíkt á gigg. Núll prósent jólastuð á mér, hvað mig varðar eru ekki jól- Í dag, aðfangadag fór ég á kaffihús í morgunsárið að hitta vini, svo að kaupa í matinn fyrir jóladag og jólapappír, svo skelltum við Goggi okkur loksins í tennis (búin að ætla að gera það síðan við komum) og svo fór ég að vinna frá 5-10. Þegar ég kom heim var mamma í símanum og eftir spjall við hana opnuðum við gjafir. Takk fyrir okkur! Nóa konfekt og fullt af íslenskri tónlist meðal annars
Á morgun jóladag er ég að vinna frá 1-5, svo borðum við eitthvað gott um kvöldið, tvö saman heima.
Gleðileg jól allir!
knúúúús
Mike Stern workshop
Posted by goggi on November 23rd, 2008 filed in Blaaa, Ástralía2 Comments »
Í morgun fórum við á workshop með frægum jazzgítarleikara, Mike Stern. Ég heyrði fyrst í honum þegar ég var ca. 16 ára og hefur alltaf fundist hann æðislegur, svo þetta var frábær upplifun fyrir mig, að geta heyrt hann segja frá sínum aðferðum og geta spurt hann spurninga, sem ég gerði. Hann kom fyrir sem mjög afslappaður maður, með mjög góðan húmor. Hann tekur sig alls ekki of alvarlega. Við erum bæði stútfull af hugmyndum og kraft eftir að hafa farið á þetta workshop. Þvílíkur hljóðfæraleikur! Hann hefur ekkert fyrir þessu. Hér er linkur.
Ég keypti mér svo disk með honum og Auður tók mynd af okkur saman:


Eftir workshopið var frítt grill fyrir alla nemendur.
Spakmæli
Posted by Auður on November 22nd, 2008 filed in SpakmæliComment now »
“Be who you are and say what you feel because those who mind don’t matter and those who matter don’t mind.” – Dr Seuss
Veit ekki hvað ég á að kalla þessa færslu…
Posted by Auður on November 22nd, 2008 filed in Blaaa, ÁstralíaComment now »
Ég trúi því varla, en ég er búin í skólanum! Tónfræðipróf síðasta mið, recital fim og skilaði inn ritgerð á fös.
Svakalegur léttir en er ekki alveg búin að fatta þetta. Recitalið mitt gekk rosalega vel, ég er ekkert smá montin!
Eftirfarandi er texti sem fylgdi og myndir:
Welcome!
After my last recital it was suggested to me that I work on different feels. Therefore, I have decided to do one bossa and one swing today, and because I have had problems finishing songs that I am writing, I set myself the goal at the start of the semester of performing one original as well. For diversity I decided to also include a popular song from the 1970´s.
I am quite new to arranging songs and this was one of the challenges for this recital; especially forming an idea of what I wanted and communicating that to the other musicians. The other challenge was the harmony of the standards I have chosen. They have quite unconventional chord progressions, with a lot of diminished chords which makes it more challenging to improvise over.
A thousand thanks to Gian Slater whose commitment and expertise is such an inspiration and who keeps dragging me out of my comfort zone. To Andrea Keller and Mick Meagher for doing the same and last but not least to Georg, Andrew, Peter and Patrick for playing with me and for your input, you’re awesome and I’m honoured to have you playing with me. Finally, thank YOU for coming and listening!
Love,
Auður
————————————————————————————————————
Program:
Corcovado (Jobim)
Let´s Get Lost (McHugh/Loesser)
I Want You (Dylan)
Bed Of Red And Yellow (Zoega)
Auður Alessandra Zoega- Vocals
Andrew Arnold- Piano
Patrick Kearney- Drums
Peter Emptage- Bass
Georg Bjarnason- sound, bass on Bed Of Red And Yellow
Já, þetta kom rosalega vel út, engin mistök, æðislegt hljóð og góður andi. Trúi því varla að við höfum bara æft tvisvar!
Emilíönu tónleikarnir voru á Þriðjudaginn, þeir voru magnaðir. Þvílík flott allt; söngurinn, hljóðfæraleikurinn, hljóðið og staðurinn. Mikill innblástur.
Búin að fara fjórum sinnum í þjálfun á vídjóleigunni og er með fjórar vaktir í næstu viku sem er gott. Á morgun verður workshop uppí skóla með Mike Stern sem er víst mjöööög stór og virtur jazzgítarleikari, á eftir á að vera frítt grill fyrir alla nemendur en það verður forvitnilegt að sjá hvort verður úr því, það er búið að rigna næstum stanslaust í dag og vera frekar kalt. Það á víst að haldast í tæpa viku.
Svo er planið hjá mér bara að setja mér markmið fyrir sumarið og vinna svo ótrauð að þeim. Hlutir eins og að hreyfa mig, semja lög og fara á fullt af giggum er ofarlega á listanum.
Spakmæli
Posted by Auður on November 16th, 2008 filed in Spakmæli1 Comment »
“Besides the noble art of getting things done, there is the noble art of leaving things undone. The wisdom of life consists in the elimination of non-essentials.” – Lyn Yutang






